Create Your First Project
Start adding your projects to your portfolio. Click on "Manage Projects" to get started
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum
Staðsetning
Reykjavík, Iceland
Ár
2011-2012
Hönnunartillagan að húsnæði Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur sækir innblástur í söguna um Babelsturninn og hlutverk tungumálsins sem lykils að heiminum. Byggingin er hringlaga með utanáliggjandi gönguleið sem hringar sig upp á þak, en þaðan er útsýni til allra átta. Húsið skiptist í þrjár hæðir sem tengjast saman með opnu miðrými: jarðhæð fyrir almenning, skrifstofuhæð og kennsluhæð.
Húsið er klætt hjúpi úr rekaviði sem ver kjarnann fyrir veðri en hleypir birtu í gegn, sem vísar í íslenska náttúru. Áhersla er lögð á sjálfbærni með grænum þökum og náttúrulegri loftræsingu. Byggingin rís upp úr spegiltjörn sem tákn um eyland og tengir saman menningu, náttúru og tungumál.























