top of page

Create Your First Project

Start adding your projects to your portfolio. Click on "Manage Projects" to get started

OꓷDSSON

Staðsetning

Reykjavík, Ísland

Ár

2019

Á reitnum við Grensásveg og Síðumúla var eldra skrifstofu- og atvinnuhúsnæði endurhannað fyrir blandaða starfsemi hótels, íbúða og þjónustu.

Við Grensásveg var fyrrum höfuðstöðvum Alþýðusambands Íslands breytt í 77 herbergja ODDSSON hótel. Við umbreytinguna var haldið í meginburðarvirki hússins, þar á meðal burðarveggi og gólfplötur, en byggingin hækkuð um tvær hæðir og klædd að utan með álklæðningu í þremur litbrigðum.

Við Síðumúla var eldra atvinnuhúsnæði endurbyggt og hækkað um eina hæð til að koma fyrir íbúðum af fjölbreyttum stærðum og gerðum.

Verkefnið er dæmi um hvernig nýta má eldri byggingar og aðlaga þær að breyttum þörfum borgarinnar, með endurnýjun, auknu byggingarmagni og fjölbreyttari starfsemi.

bottom of page