top of page

Create Your First Project

Start adding your projects to your portfolio. Click on "Manage Projects" to get started

Menningarmiðstöð Kópavogs

Staðsetning

Kópavogur, Ísland

Ár

1999

Menningarmiðstöðin var hönnuð í tveimur áföngum. Fyrri áfangi var Tónlistarhúsið, sem hýsir annars vegar Salinn og hins vegar Tónlistarskóla Kópavogs og var sá áfangi vígður í janúar 1999 og var tilnefndur til Menningarverðlauna DV það ár. Seinni áfangi, svo kallað Safnahús, sem hýsir annarsvegar Bókasafn Kópavogs og hins vegar Náttúrufræðistofu Kópavogs, var vígður í maí 2002.
Frá upphafi var lögð áhersla á íslenskan efnivið í byggingunni. Á innveggjum Salarins er greni úr Skorradal, malað grjót úr grunni hússins er í terazzogólfum, norð-austurhlið er klædd steyptum flísum og glerveggurinn á vesturhlið er að hluta til klæddur sólskermi úr rekaviði frá Langanesi. Þessi "íslenski nytjaviður" er ómeðhöndlaður og mun verða silfurgrár í tímans rás. Þegar inn í Salinn er komið eru veggir klæddir með öðrum íslenskum nytjavið, þ.e. greni úr Skorradal. Viðurinn er hafður stórskorinn, grófur og veðurbarinn úti, en smágerður, slípaður og lakkaður inni. Hugtakið vistvænn arkitektúr var lítt þekkt í hönnunarferli Menningarmiðstöðvarinnar, en þessi bygging flokkast tvímælalaust undir það hugtak í dag.

bottom of page