Create Your First Project
Start adding your projects to your portfolio. Click on "Manage Projects" to get started
HLÍÐARENDI / SKIPULAG
Staðsetning
Reykjavík, Ísland
Ár
2014
ALARK arkitektar unnu deiliskipulag Hlíðarenda á grundvelli vinningstillögu Graeme Massie Architects í alþjóðlegri skipulagssamkeppni um framtíð Vatnsmýrar árið 2008. Markmið skipulagsins er að skapa þétta, fjölbreytta og lifandi borgarbyggð með sterka vísan í miðbæ Reykjavíkur.
Skipulagið byggir á randbyggð þar sem hús mynda skýra götumynd og umlykja gróðursæla, skjólgóða inngarða fyrir íbúa. Áhersla er lögð á blandaða byggð þar sem íbúðir, verslun, þjónusta og atvinnustarfsemi fléttast saman. Með atvinnurýmum á jarðhæðum við helstu götur er leitast við að skapa virkt borgarrými og mannlíf frá morgni til kvölds.
Byggðin er að mestu þrjár til fimm hæðir, með fjölbreyttum húshæðum, efnisvali og yfirbragði. Stærri byggingarreitir eru brotnir upp í smærri einingar til að skapa mannlegan mælikvarða og lifandi götumynd. Þannig myndast heildstætt en fjölbreytt borgarumhverfi með sterka skírskotun til sögulegrar byggðar Reykjavíkur.
Skipulagið tekur jafnframt mið af starfsemi Knattspyrnufélagsins Vals og leggur grunn að nýju borgarhverfi þar sem íbúðarbyggð, atvinnulíf og íþróttastarfsemi eiga sér samastað.









