Create Your First Project
Start adding your projects to your portfolio. Click on "Manage Projects" to get started
Akureyrarvöllur
Staðsetning
Akureyri, Iceland
Ár
2026
Tillaga ALARK að endurnýjun Akureyrarvallar hlaut fyrsta sæti í samkeppni um framtíðarskipulag svæðisins. Tillagan byggir á því að umbreyta sögulegu íþrótta- og samkomusvæði í lifandi, grænt og fjölbreytt miðbæjarsvæði. Akureyrarvöllur hefur um áratugaskeið verið eitt af kennileitum bæjarins, bæði sem vettvangur íþrótta, hátíðahalda og mannlífs. Í tillögunni er þessi saga nýtt sem grunnur að framtíðarsýn fyrir svæðið.
Meginhugmynd tillögunnar er að endurvekja hlaupabrautina sem einkenndi svæðið um langt árabil og gefa henni nýtt hlutverk sem grænum samgöngu- og útivistarás. Hlaupabrautin tengir Ráðhústorg og Glerártorg og verður leið fyrir gangandi, hjólandi og hlaupandi, um leið og hún styrkir tengsl miðbæjarins við Glerársvæðið.
Á svæðinu er gert ráð fyrir blandaðri byggð í hóflegum mælikvarða, með íbúðum, verslun og þjónustu á jarðhæðum. Byggðin tekur mið af nærliggjandi íbúðabyggð og sækir innblástur í eldri húsagerðir bæjarins, meðal annars hvað varðar form, efnisval og yfirbragð. Áhersla er lögð á manneskjulegan skala og hlýlegt bæjarumhverfi.
Gamla áhorfendastúkan fær áfram mikilvægt hlutverk sem hluti af nýju almenningsrými. Við hana myndast miðlægur samkomustaður með tjörn, útisvæðum, leik- og æfingasvæðum, sviði og möguleika á fjölbreyttri starfsemi allt árið um kring. Tjörnin verður hluti af blágrænum ofanvatnslausnum og getur jafnframt nýst sem skautasvell yfir vetrartímann.
Tillagan leggur áherslu á sjálfbærar lausnir, grænt almenningsrými og góðar tengingar við nærumhverfið. Gegndræp yfirborðsefni, gróður, safntjörn og ofanvatnsrásir draga úr álagi á fráveitukerfi og styrkja vistvænt yfirbragð svæðisins.
Með endurnýjun Akureyrarvallar verður til nýr áfangastaður í hjarta Akureyrar; svæði sem sameinar sögu, hreyfingu, búsetu, þjónustu og mannlíf í grænu og aðlaðandi bæjarumhverfi.



















